Réttarsálfræði
Guðbjörn Hólm Veigarsson

Réttarsálfræði

Réttarsálfræði er fyrsta íslenska kennslubókin sem er sérstaklega skrifuð fyrir framhaldsskóla um þetta ört vaxandi fræðasvið. Bókin veitir heildstæða yfirsýn yfir hvernig sálfræðileg þekking er nýtt innan réttarkerfisins og hvernig hún getur stuðlað að betri skilningi á glæpum, afbrotum og mannlegri hegðun.

Réttarsálfræði er fyrsta íslenska kennslubókin sem er sérstaklega skrifuð fyrir framhaldsskóla um þetta ört vaxandi fræðasvið. Bókin veitir heildstæða yfirsýn yfir hvernig sálfræðileg þekking er nýtt innan réttarkerfisins og hvernig hún getur stuðlað að betri skilningi á glæpum, afbrotum og mannlegri hegðun.

Í bókinni er meðal annars fjallað um sögu réttarsálfræðinnar, rannsóknarsálfræði, vitnisburð, minni, falskar játningar, afbrotamörkun, geð- og taugaþroskaraskanir í réttarkerfinu, vinnu með þolendum og gerendum, siðferðileg álitamál, áhrif fjölmiðla og samfélagsmiðla, íslenska sem erlenda fræðinga og stöðu réttarsálfræðinnar á Íslandi. Fræðileg umfjöllun er tengd raunverulegum sakamálum, nýlegum rannsóknum og íslensku samhengi.

Bókin er byggð upp sem kennslugagn með skýrum samantektum og QR-kóðum sem vísa á verkefnabanka og viðbótarefni, svo sem hlaðvörp, fyrirlestra, heimildamyndir, myndbönd og annað. Hún styður við gagnrýna hugsun, sjálfstæð vinnubrögð og umræðu um siðferðileg álitaefni og hentar jafnt til kennslu sem sjálfstæðs náms.

Réttarsálfræði er ætluð nemendum, kennurum og öllum þeim sem vilja öðlast dýpri skilning á samspili sálfræði og réttarkerfisins.

Bók þessi var styrkt af Þróunarsjóði námsgagna hjá Rannís.
Um höfundinn

Guðbjörn Hólm Veigarsson

Guðbjörn Hólm Veigarsson er sálfræðimenntaður framhaldsskólakennari með meistaragráðu í kennslufræði. Hann starfar við Menntaskólann á Tröllaskaga þar sem hann kennir meðal annars sálfræði og aðrar félagsgreinar.

Við undirbúning kennslu í réttarsálfræði kom í ljós að lítið námsefni væri til á íslensku um þessa áhugaverðu fræðigrein og því varð úr að skrifa bók um efnið sem væri aðgengileg bæði framhaldsskólanemendum og öðrum áhugasömum lesendum.